Um kórinn 2025-09-30T09:20:33+00:00

Kórstarfið

Einkunnarorð kórsins og eru ,,Syngja eins og englar, hegða sér eins og herrar og leika sér eins og strákar“

Drengjakór Reykjavíkur var stofnaður í Laugarneskirkju árið 1990. Hann er eini starfandi drengjakór á Íslandi og hefur því nokkra sérstöðu í barnakórastarfi á Íslandi þar sem stúlkur eru jafnan í meirihluta. Kórinn er vettvangur fyrir söngelska stráka þar sem þeir geta þroskað tónlistarhæfileika sína í faglegu samhengi og í góðum félagsskap annarra syngjandi drengja. Kórinn vex jafnt og þétt og eru meðlimir nú á aldrinum 8-15 ára. Sungin er tónlist af ýmsum toga, bæði trúarleg og veraldleg, gömul og ný. Fléttað er inn fræðslu um tónlist og sönggleðin er í fyrirrúmi. Stjórnandi kórsins síðan 2019 er Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenórsöngvari og meðleikari á píanó er Laufey Sigrún Haraldsdóttir. Stjórnandi undirbúningsdeildar er Anna Hugadóttir.

Kórinn æfir í Háteigskirkju á mánudögum og æfir kjarnakórinn í kirkjunni milli 16:45 og 18:15. Undirbúningsdeild kórsins, fyrir drengi í 1.-2. bekk grunnskóla, æfir í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju klukkan 16:15-17.

Drengjakór Reykjavíkur heldur árlega jóla- og vortónleika auk þess að koma fram við hin ýmsu tilefni og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum. Þannig tók kórinn þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar á Tosca eftir Puccini árið 2017 og kom fram í sjónvarpsþættinum Kórum Íslands sama ár.  Haldið var upp á 30 ára söngafmæli með veglegum afmælistónleikum vorið 2022 og söng kórinn á tónleikum með Íslenskum strengjum í Norðurljósasal Hörpu um haustið.  Drengjakórinn stóð fyrir alþjóðlegri drengjakórahátíð, The Boys are Singing, með Sofia Boys Choir árin 2022-2023, ferðaðist til Búlgaríu haustið 2022 og tók á móti SBC á Íslandi í júní 2023. Þá um vorið söng kórinn með í Carmina Burana með fjölda annarra kóra og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þess utan hefur Drengjakórinn komið fram sem aukaleikarar í kvikmyndinni Abbababb, komið fram á hlustendaverðlaunum FM957 og hefur sungið inn á plötur, nú síðast jólaplötuna Winter Light með Olga Vocal Ensemble. Kórinn kemur reglulega fram í messum, á ráðstefnum, sem gestakór og við fleiri tilefni sem til falla.

Öflugt foreldrafélag heldur utan um starfsemi kórsins í samvinnu við stjórnanda hans. Mikilvægt er að foreldrar séu virkir þátttakendur í starfsemi kórsins. Ferðalög eru fastur þáttur í starfseminni en kórinn ferðast bæði innanlands og fer í söngferðalög til útlanda. Þessi ferðalög hafa verið fjármögnuð með öflugri fjáröflun foreldra og drengja. Barnamenningarsjóður, Tónlistarsjóður og Barnavinafélagið Sumargjöf hafa einnig styrkt kórinn til einstakra verkefna.

Kórgjöld eru ákveðin á aðalfundi foreldrafélagsins ár hvert.

  • Æfingar fara fram í Háteigskirkju einu sinni í viku á mánudögum kl. 16:45-18:15.
  • Undirbúningsdeild verður í Setrinu í safnaðarheimili Háteigskirkju kl 16:15-17, einnig á mánudögum.
  • Kórgjöld fyrir starfsárið 2025-2026 eru 10.000 kr. á mánuði. Systkinaafsláttur er 50%. Kórgjöld í undirbúningsdeild eru 5000 kr. á mánuði. Kórgjöld innheimtast í upphafi annar en hægt er að dreifa greiðslum í samráði við gjaldkera.