Merki Drengjakórs Reykjavíkur
Um kórinn
Drengjakór Reykjavíkur starfar við Hallgrímskirkju í Reykjavík, höfuðkirkju Íslands. Í kórnum eru drengir á aldrinum 8 - 14 ára. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson og undirleikari kórsins er Lenka Matevoa. Kórinn er kirkjukór og eini drengjakórinn hér á landi. Hann hefur bæði flutt trúarlega og veraldlega tónlist á ferli sínum. Drengirnir syngja flest lög í þriggja radda útsetningum, þ.e. raddskipunina: 1. sópran, 2. sópran og altrödd. Á tónleikum kórsins syngja drengirnir einnig einsöng, dúetta og tríó.

Drengjakór Reykjavíkur var stofnaður þann 6. október 1990. Ronald Turner, nýráðinn organisti Laugarneskirkju var upphafsmaður að stofnun drengjakórs við kirkjuna og fékk hann til þess dyggan stuðning frá þáverandi sóknarpresti, sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni og sóknarnefnd kirkjunnar. Kórinn fékk heitið Drengjakór Laugarneskirkju. Stofnfélagar voru 15 drengir á aldrinum 10-12 ára, víðs vegar af höfuðborgarsvæðinu. Ronald Turner stjórnaði kórnum fyrstu árin en haustið 1994 tók Friðrik S. Kristinsson við kórstjórn og hefur stjórnað kórnum af mikilli röggsemi allar götur síðan.

Haustið 2001 flutti kórinn aðsetur sitt yfir í Neskirkju þar sem hann starfaði í þrjú ár og nefndist þá Drengjakór Neskirkju. Það var síðan sumarið 2004 sem kórnum var boðin aðstaða í Hallgrímskirkju, en aðstæður til kórastarfs eru þar með því besta sem gerist hér á landi.

Einkunnarorð kórsins eru "Syngja eins og englar, hegða sér eins og herrar og leika sér eins og strákar". Þau eru lýsandi fyrir hið mikla uppeldislega gildi kórstarfsins. Í kórstarfi læra drengirnir að starfa saman, taka tillit til annarra og síðast en ekki síst fá þeir mikilsvert tónlistarlegt uppeldi, sem þeir búa að alla tíð bæði í leik og starfi. Margir fyrrverandi kórfélagar hafa haldið áfram tónlistarnámi sínu eftir að kórnum sleppir.

Drengjakór Reykjavíkur æfir reglulega tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum, kl. 17:00 - 18:45. Einnig fá drengirnir þjálfun í raddbeitingu. Foreldrar eru beðnir um að tilkynna forföll drengja til kórstjórnanda. Æskilegt er og í raun nauðsynlegt að foreldrar mæti á nokkrar æfingar á starfsárinu. Þá skulu þeir sem eiga unga drengi sem eru að hefja sinn feril í kórnum mæta vel á fyrstu æfingar vetrarins. Á þetta hefur kórstjórinn lagt mikla áherslu. Það er margsannað mál að meðvirkni foreldra í tómstundastarfi barna þeirra eykur áhuga og hefur mikil áhrif á það hversu lengi það er stundað.

Kórinn syngur að jafnaði einu sinni í mánuði í messu á starfsárinu og er að sjálfsögðu skyldumæting. Æft er fyrir messuna á miðvikudagsæfingu og á sunnudagsmorgninum er yfirleitt mæting kl. 9:30.

Drengirnir þurfa að eiga svartar buxur úr tereline eða öðru sambærilegu efni (ekki flauel eða gallabuxnaefni), svarta sokka og svarta skó. Annar kórbúningur er í eigu kórsins. Gera má ráð fyrir því að kirkjan biðji kórinn að taka þátt í einhverjum fleiri athöfnum á vegum kirkjunnar.

Árlega heldur kórinn jóla- og vortónleika. Einnig kemur kórinn fram við mörg önnur hátíðleg tækifæri, jafnt utan kirkju sem innan.

Á hverjum vetri er farið í æfingabúðir út fyrir höfuðborgarsvæðið. Þar gefst drengjunum gott tækifæri til samveru í leik og starfi.

Hver drengur hefur umsjón með sinni kórmöppu sem inniheldur þau lög sem kórinn er að æfa. Mikilvægt er að foreldrar aðstoði drengina við að fara yfir texta og hafa möppuna í röð og reglu. Kórstjóri ætlast til að drengirnir læri alla texta utanbókar enda gildir sú regla að þeir hafa aldrei möppur á tónleikum eða annars staðar þar sem þeir syngja. Í messum mega þeir þó hafa blöð með sálmunum.
.: Keyrt af Vefumsýslukerfi Habilis :.